Skilmálar

SKILMÁLAR

Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu Daley kerti til neytenda. Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskipti. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og tryggjum við ávallt viðskiptavinum okkar örugg viðskipti á netinu.

SKILGREININGAR

Seljandi er Daley kerti kt. 210488-3089. Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikningi. Við sendum eingöngu innanlands og kaupandi þarf að vera a.m.k. 16 ára.

 

SKILARÉTTUR

Hægt er að skila vörum með einföldum hætti ef varan er óskemmd, óopnuð í upprunalegum umbúðum og ef kvittun fylgir með. Ef um gallaða vöru er að ræða skal hafa samband við okkur með tölvupósti daleykerti@gmail.com og við annaðhvort endurgreiðum eða þu færð nýtt kerti.

Almennur skilafrestur á vörum eru 30 dagar. Kostnaður við endursendingu póstleiðis er á ábyrgð kaupanda. Ef vara reynist gölluð greiðir Daley kerti., fyrir endursendingu vörunnar. 

VERÐ OG VERÐBREYTINGAR

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og með fyrirvara um innsláttarvillur. Daley kerti., áskilur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.


Ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager tímabundið, upplýsum við strax um málið og bjóðum uppá að hún verði send um leið og hún er aftur fáanleg. Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma mun Daley kerti endurgreiða pöntunina að fullu hafi greiðsla átt sér stað.

PERSÓNUVERND

Daley kerti., fer með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til að klára viðkomandi viðskipti. Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu. 


SENDINGARMÖGULEIKAR OG KOSTNAÐUR

Flutningskostnaður rennur beint til Dropp. Afhendingar, ábyrgðar- og flutningsskilmálar  Dropp gilda um dreifingu og afhendingu allra sendinga frá Daley kerti.

ÖRYGGI

Það er 100% öruggt að versla hjá Daleykerti.is

Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor/Straums.


GREIÐSLUMÖGULEIKAR

Í netverslun Daley kerti er boðið uppá að greiða með öllum helstu greiðslukortum og fer greiðsla í gegnum örugga greiðslugátt hjá Valitor á Íslandi. Einnig er boðið upp á að greiða með millifærslu og við afhendingu ef varan er sótt.

VARNARÞING

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Daley kerti kt 210488-3089 á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum. Heimilisfang félagsins er Sléttuvegur 1, 800 Selfoss. Varnarþing félagsins skal vera í Reykjavík skv. V. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, nema ákvæði sérlaga kveði á um annað.


MYNDIR, MYNDBIRTINGAR OG MYNDEFNI

Allar myndir og myndefni á vefsíðunni DALEYKERTI.IS sem og allar myndbirtingar sem eru notaðar á samfélagsmiðlum, í auglýsingum eða öðrum opinberum vettvangi fyrir hönd Daley kerti bera höfundarrétt og er því með öllu óheimilt að nota það myndefni í öðrum tilgangi en í tengslum við DaleyKerti. Notkun á slíku myndefni varðar lög.


PÓSTLISTI

Með skráningu á póstlistann munum við vista upplýsingar um nafn og netfang.


Upplýsingar eru einungis nýttar í þeim tilgangi að senda þér tilboð eða fréttir um nýjar vörur og þjónustu.


Upplýsingar eru vistaðar meðan skráning á póstlistanum er virk, en hægt er að afskrá sig hvenær sem er og þá er öllum persónulegum upplýsingum eytt.